Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segir í færslu á Facebook í dag að flokkurinn hafi verið útilokaður frá leiðtogaumræðunum sem haldnar voru í Gamla bíó í morgun. Spyr hún hvort það stafi vegna þess, að flokkurinn berjist gegn fátækt og lágum launum:
„Getur verið að barátta Flokks fólksins gegn fátækt og allt of lágum launum verkafólks sé ástæða þess að hann er útilokaður frá leiðtogaumræðunum sem haldnar voru í Gamla bíó í morgun? SA, SAF, SI og SVÞ buðu til fundarins þar sem rætt var um sambúð borgar og atvinnulífsins.“
Samtök atvinnulífsins, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu héldu fundinn. Inga segir að samtökin hundsi Flokk fólksins og hún hafi fengið það staðfest að ekki væri pláss fyrir flokkinn í umræðunum:
„Að þessi samtök skuli hundsa okkur svona gjörsamlega segir okkur aðeins eitt. Þeir vilja losna við Flokk fólksins, Við erum að gera RÉTT ! Tek það fram að við hringdum til að ath. hvort þetta væru mistök, en það var það sannarlega ekki, svarið sem við fengum var einfalt, “ það eru of margir í pallinum og ekki pláss fyrir ykkur.“
Tekið skal fram að í auglýsingum fyrir fundinn er sagt að oddvitar stærstu framboðanna muni mætast í umræðum um sambúð borgar og atvinnulífs.
Þátttakendur á fundinum voru oddvitar Samfylkingar, Pírata, Sjálfstæðismanna, Framsóknarflokksins, Vinstri grænna, Miðflokksins og Viðreisnar, en þess má geta að Framsókn hefur mælst lægri en Flokkur fólksins í þjóðarpúlsi Gallup og könnun Fréttablaðsins undanfarna daga.
Samkvæmt nýjustu könnun mælist Flokkur fólksins með 2.8 prósenta fylgi en Framsókn 2.5 prósent.