fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Sigmundur Davíð gagnrýnir fjölskyldutengsl fréttamanns RÚV

Ritstjórn DV
Föstudaginn 4. maí 2018 11:47

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, segir að fréttamaður RÚV hafi lagt lykkju á leið sína við að tengja eiginkonu sína, Önnu Sigurlaugu Pálsdóttur, við aflandsfélag í frétt um aflandsfélög Breta. Sigmundur vill meina að fjölskyldutengsl fréttamannsins, Ævars Arnar Jósepssonar, hafi ráðið för. Ævar er faðir Þórhildar Sunnu, þingmanns Pírata.

„Það er nú meira hvað sumir fréttamenn RÚV fá að nota ríkismiðilinn til að reka sína pólitík. Í frétt um frumvarp í breska þinginu, um að sum bresk yfirráðasvæði birti lista yfir eigendur fyrirtækja sem þar eru skráð, lagði fréttamaðurinn lykkju á leið sína til að hnýta í konuna mína. Eftir vangaveltur um hversu mikið fé væri falið í skattaskjólum „meira og minna utan sjónmáls og seilingar skattayfirvalda“ fylgdi eins og skrattinn úr sauðarleggnum fullyrðing um að eiginkona mín hefði átt svona aflandsfélag,“ segir Sigmundur.

Hann telur að eiginkona sín hafi ekki átt aflandsfélaga, þvert á það sem kom fram í Panamaskjölunum. „Það er eins og margoft hefur komið fram rangt. Konan mín hefur aldrei átt „aflandsfélag“ hún sjálf og félag í hennar eigu hafa þvert á móti alltaf verið íslenskir skattaðilar og greitt fullan skatt hér á landi (og meira til) þar sem nafn, skráningarland og eignir hafa verið gefnar upp frá upphafi. Það er ekki hægt að una því að ríkisfjölmiðillinn sé ítrekað notaður til að vega að eiginkonu minni sem alla tíð hefur lagt sig fram við að standa skil á öllu sínu gagnvart samfélaginu og miklu meira en það,“ segir Sigmundur Davíð.

Sigmundur spyr hvort hann geti komið ættingjum sínum í starf hjá RÚV. „Maðurinn sem skrifaði og flutti fréttina er faðir þess þingmanns Pírata sem hefur gengið lengst í meinbægni og því að kasta fram ásökunum og rangfærslum í minn garð og margra annarra samstarfsmanna. Ýmsir ættingjar mínir og vinir hafa miklar skoðanir á ýmsum stjórnmálaflokkum og -mönnum. Ætli einhver þeirra geti fengið vinnu hjá ríkisstofnuninni til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri í fréttum? Það myndi eflaust nægja þeim að fá að segja rétt frá,“ segir Sigmundur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn