Listamaðurinn Þrándur Þórarinsson sendi mér myndina sem birtist hér með þeim orðum að hún væri byggð á frásögn úr sjónvarpsþáttum okkar Guðjóns Friðrikssonar, Kaupmannahöfn – höfuðborg Íslands. Þar sögðum við frá Ingibjörgu Ólafsson, konu sem hafði miklar áhyggjur af siðferði íslenskra kvenna sem komu til Hafnar. Ingibjörg starfaði með KFUK í Kaupmannahöfn.
Bæklingurinn hét Um siðferðisástandið á Íslandi. Í þættinum sagði:
Hún hneykslast mjög á ferðum stúlkna til Kaupmannahafnar til að eignast börn á laun. Hún segir að margar af þessum stúlkum komist ekki heim aftur, fái ekki vinnu og sumar hafi fyrirfarið sér, og aðrar hafi beinlínis farið út á götur og selt sig til að fá peninga. Það sem hún hneykslast einna mest á er að þær eru á peysufötum hér úti á götu að selja sig.
Þetta verður Þrándi tilefni til þessa málverks. Það verður á sýningu með verkum sem Þrándur hefur málað af okkar gömlu höfuðborg og verður í menningarmiðstöðinni Nordatlantens brygge í Kaupmannahöfn frá 19. maí til 20. ágúst.
Hér er svo önnur mynd sem verður á auglýsingaplakötum fyrir sýningu Þrándar í borginni.