fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Kristján kemur í veg fyrir ostaklúðrið

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 30. apríl 2018 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Líkt og Eyjan greindi frá í byrjun mánaðarins, varð ágalli í lagasetningu, þegar Alþingi samþykkti búvörusamningana haustið 2016, til þess að vilji Alþingis um að flýta gildistöku tollkvóta svokallaðra sérosta, skilaði sér ekki í lagatextann. Félag atvinnurekenda benti á þetta og gagnrýndi klúður Atvinnuvegaráðuneytisins í kjölfarið. Stefndi því allt í að heil 104 tonn af  tollfrjálsum sérostum frá ríkjum Evrópusambandsins, yrði ekki flutt inn til landsins í ár.

Kristján Þór Júlíusson, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, er hinsvegar búinn að redda málunum. Hann mun flytja frumvarp á Alþingi sem tryggja mun neytendum hina gómsætu osta og ætti að verða samþykkt á miðvikudag. Þetta kemur fram á vef Félags atvinnurekenda:

 

„Kristján Þór Júlíusson, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, mun flytja frumvarp á Alþingi sem tryggir neytendum 104 tonn af tollfrjálsum ostum, sem þeir hefðu ella farið á mis við á árinu. FA vakti í byrjun mánaðarins athygli á því að klúður hefði orðið við samþykkt búvörusamninganna á Alþingi, en samkvæmt samkomulagi sem þá var gert átti allur tollkvótinn fyrir svokallaða sérosta að taka gildi strax við gildistöku tollasamnings Íslands og ESB. Samningurinn gengur í gildi á morgun, 1. maí.

Orðalag í lögunum var hins vegar ekki nógu skýrt að mati atvinnuvegaráðuneytisins, sem auglýsti aðeins hluta tollkvótans. FA hefur síðan fylgt málinu eftir bæði gagnvart atvinnuveganefnd Alþingis og gagnvart ráðherra og vakið athygli á að nauðsynlegt er að þessi mistök verði leiðrétt fyrir þinglok, enda eru miklir hagsmunir í húfi bæði fyrir innflytjendur matvöru og fyrir neytendur. Niðurstaðan varð sú að ráðherra myndi flytja frumvarp til breytinga á tollalögum, sem tryggi að öll sú aukning á tollkvóta fyrir sérosta, sem tollasamningur Íslands og ESB kveður á um, taki gildi á fyrsta gildisári tollasamningsins, en annars tekur stækkun á tollkvótum samkvæmt samningnum gildi í áföngum á fjórum árum.

Frumvarpið var á dagskrá ríkisstjórnarfundar á föstudag og samkvæmt upplýsingum sem FA hefur aflað sér var það samþykkt þar og verður lagt fram á Alþingi á miðvikudag.

Breytingin tekur til sérosta á borð við Parmesan eða Rochefort, sem eru skráðir í samræmi við reglur um vernd afurðaheita sem vísa til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinn­ar sérstöðu. Samkvæmt núverandi samningi við Evrópusambandið er tollfrjáls innflutningskvóti fyrir þessa osta 20 tonn en verður samkvæmt hinum nýja tollasamningi við ESB 230 tonn.

Þessi breyting mun snarauka úrvalið í ostaborðum íslenskra verslana. Jafnframt kveða búvörulög nú á um að tollkvótum fyrir sérosta skuli úthlutað með hlutkesti en ekki útboði, þannig að á þá leggst ekki útboðsgjald. Breytingin mun þannig jafnframt stuðla að verðlækkun og aukinni samkeppni við innlendan landbúnað.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni
Eyjan
Fyrir 6 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins