Eyþór Arnalds, borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins, gerði opinber kosningaloforð flokksins á dögunum. Eitt þeirra var að þeir sem væru 70 ára og eldri, þyrftu ekki að borga fasteignaskatta, kæmist Eyþór til valda. Líf Magneudóttir, oddviti VG í borgarstjórn, benti á að þetta stangaðist á við lög, þar sem sveitarfélögum sé óheimilt að fella niður slík gjöld.
Þá hefur Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, bent á að þetta hafi lengi verið viðkvæðið í Eyjum, að þeir sem séu 70 ára og eldri greiði ekki fasteignagjöld, óháð tekjum og þeir sem séu orðnir 67 ára greiði ekki fasteignaskatta af eigin heimilum.
Nú hefur samgönguráðuneytið ákveðið að krefja Vestmannaeyjabæ um svör vegna þessa fyrirkomulags Eyjamanna. Vísir.is greinir frá svari ráðuneytisins vegna fyrirspurnar sinnar:
„Þar sem fram hafa komið upplýsingar í fjölmiðlum um að framkvæmd Vestmannaeyjabæjar á álagningu fasteignaskatts kunni þrátt fyrir þetta að fara gegn ákvæðum laga um tekjustofna sveitarfélaga, hefur samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, með vísan til 112. gr. og 113. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, ákveðið að kalla eftir upplýsingum og gögnum frá Vestmannaeyjabæ varðandi það hvernig staðið hefur verið að framkvæmd þessara mála undanfarin ár. Í framhaldi af því mun ráðuneytið meta hvort tilefni er til að taka stjórnsýslu sveitarfélagsins að þessu leyti til formlegrar skoðunar.“