fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Styrmir vildi uppgjör við hrunið á landsfundi: „Meðvituð ákvörðun forystusveitar nýrrar kynslóðar í flokknum“

Trausti Salvar Kristjánsson
Þriðjudaginn 20. mars 2018 11:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Styrmir Gunnarsson

Styrmir Gunnarsson, fyrrum ritstjóri Morgunblaðsins, hefur verið einn ötulasti talsmaður þess að Sjálfstæðisflokkurinn geri upp hrunið, með því að líta í eigin barm. Þetta er eitt helsta umfjöllunarefnið í bók hans „Uppreisnarmenn frjálshyggjunnar-Byltingin sem aldrei varð“ er kom út á síðasta ári.

Í færslu á heimasíðu sinni í dag, sem ber yfirskriftina „Það sem ekki var rætt á landsfundi“, segir Styrmir að Sjálfstæðisflokkurinn telji ekkert ósagt um hrunið, sem kosti flokkinn fylgi:

„Að loknum landsfundi Sjálfstæðisflokksins nú um helgina er tvennt ljóst: Sjálfstæðisflokkurinn telur sig ekki eiga neitt ósagt við íslenzku þjóðina um ástæður hrunsins – nú þegar 10 ár verða liðin í haust frá þeim ósköpum. Sjálfstæðisflokkurinn telur enga ástæðu til að ræða í eigin ranni þá staðreynd að flokkurinn hefur tapað a.m.k. 10 prósentustigum af fylgi sínu ef ekki meiru.

Þetta er bersýnilega meðvituð ákvörðun forystusveitar nýrrar kynslóðar í flokknum. Um hana má segja að hver er sinnar gæfusmiður. Afleiðingarnar blasa hins vegar við. Verulega minnkandi áhrif flokksins á framvindu landsmála.“

 

Uppgjörsmálið virðist Styrmi ansi hugleikið. Hinsvegar eru litlar líkur á að honum verði að ósk sinni, tíu árum eftir atburðinn, þar sem fáir aðrir, ef einhverjir, innan flokksins hafa vakið máls á þessu undanfarið og forysta flokksins virðist frekar vilja horfa fram á veginn, heldur en að líta um öxl.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn