fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Eyjan

Heilbrigðisráðherra: Alvarleg staða á bráðamóttöku vegna álags

Trausti Salvar Kristjánsson
Mánudaginn 12. mars 2018 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra gerði grein fyrir erfiðum aðstæðum á bráðamóttöku Landspítala vegna mikils álags á fundi ríkisstjórnar síðastliðinn föstudag. Ráðherra leggur áherslu á að hratt verði  unnið að verkefnum sem ákveðin hafa verið til að efla heilbrigðiskerfið og styrkja mönnun þess. Svandís vísar þar meðal annars til yfirlýsingar forsætis- fjármála- og efnahagsráðherra og heilbrigðisráðherra um heilbrigðiskerfið og mönnun þess í tengslum við kjarasamninga BHM nýlega.

Erfiðar aðstæður á Landspítala birtast einkum í því að mikill fjöldi sjúklinga leitar til sjúkrahússins á sama tíma og erfitt reynist að útskrifa þá sem lokið hafa meðferð. Um miðjan febrúar síðastliðinn var álagið sérstaklega mikið og var heilbrigðisráðherra upplýstur um alvarlega stöðu á bráðamóttöku. Ráðuneytið upplýsti Embætti landlæknis jafnframt um stöðuna. Þegar staðan var hvað erfiðust, aðfaranótt 13. febrúar, voru 63 sjúklingar á bráðamóttökunni þar sem rúmstæði eru fyrir 32 sjúklinga. Bið eftir læknisskoðun var allt að sex klukkustundir sem að mati sjúkrahússins er of langur tími til að ábyrgjast megi öryggi allra sjúklinga sem á móttökuna leita og skapi aukna hættu á alvarlegum atvikum.

Við þessar aðstæður hafa sjúklingar þurft að bíða í allt að fimm sólarhringa á bráðamóttöku eftir viðeigandi legurými á almennri deild. Vegna skorts á hjúkrunarfræðingum voru 35 rými lokuð á spítalanum og nýlega þurfti að loka tveimur gjörgæslurýmum af sömu ástæðum. Auk erfiðleika vegna skorts á hjúkrunarfræðingum hefur Landspítalinn  bent á aukið álag vegna fjölgunar ferðamanna en á síðasta ári voru 17% legudaga á gjörgæslu vegna ferðamanna.

Fyrstu tvo mánuði ársins hefur komum á bráðamóttöku fjölgað um rúmlega 500 (4,6%), hærra hlutfall þeirra sem leita á bráðamóttöku þurfa að leggjast inn og þeir sem þurft hafa innlögn það sem af er ári hafa dvalið að jafnaði 16 – 17 klukkustundir á bráðadeild eftir að innlögn hefur verið ákveðin, á móti 13 – 14 klst. á sama tíma á síðasta ári. Ástæða tafa á innlögn á almenna deild er skortur á rýmum.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir ljóst að vandi Landspítalans sé margþættur og það verði að nálgast lausnirnar á þeim grunni:

„Við þurfum að hraða vinnu við að fullmóta heilbrigðisstefnu fyrir allt landið, skilgreina hlutverk og verkaskiptingu innan kerfisins og hefja það víðtæka samstarf sem nauðsynlegt er til að efla nýliðun heilbrigðisstétta, líkt og fjallað er um yfirlýsingu okkar ráðherranna þriggja um heilbrigðiskerfið og mönnun þess“

 

segir ráðherra. Einnig sé uppbygging hjúkrunarrýma  veigamikill þáttur í því að styrkja heilbrigðiskerfið og bæta þjónustu, ekki síst við aldraða sem ekki nægir sá stuðningur sem í boði er til að búa á eigin heimili.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“