fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Menntamálaráðherrar Suður-Kóreu og Íslands vilja hefja samstarf í menntamálum

Trausti Salvar Kristjánsson
Sunnudaginn 11. febrúar 2018 11:39

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kim Sang-Kon, menntamálaráðherra og varaforsætisráðherra Suður-Kóreu, tók á móti Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, í Seúl. Á fundinum var ákveðið að hefja samstarf á milli menntamálaráðuneytanna með það að leiðarljósi að efla menntun, rannsóknir og þróun. Nú þegar eru samningar á milli háskóla ríkjanna um skiptinám sem margir nemar hafa nýtt sér.  Ráðherrarnir lýstu yfir vilja til að auka slíkt samstarf enn frekar.

Að auki auki ræddu ráðherrarnir þær áskoranir sem bæði ríkin standa frammi fyrir í menntamálum og framþróun á því sviði. Suður-Kóreska menntakerfið hefur komið vel út í alþjóðlegum samanburði.

Fram kom í máli menntamálaráðherra Suður-Kóreu að lykillinn að velgengni menntakerfisins væri góð umgjörð í kringum kennarastarfið en það nýtur mikillar virðingar. ,,Stjórnvöld leggja mikla áherslu á samkeppnishæft starfsumhverfi fyrir kennara. Að auki er mikil símenntun hjá kennurum sem tekur mið af þeim hröðu tæknibreytingum sem eru að eiga sér stað“, sagði Kim Sang-Kon.

,,Þetta var mjög gagnlegur fundur sem markar nýtt upphaf í samskiptum þjóðanna á sviði menntamála. Suður-Kórea hefur getið sér gott orð fyrir þróttmikið og öflugt menntakerfi. Kennarastarfið er í hávegum haft í Suður-Kóreu og færri komast að í kennaranámið en vilja.  Það er mikilvægt að styrkja alla umgjörð í kringum kennarastarfið og fara í markvissar aðgerðir til takast á við þann mikla kennaraskort sem blasir við að öðru óbreyttu“, sagði Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.

Fundurinn er hluti af dagskrá ráðherra, sem undanfarna daga hefur kynnt sér suður-kóreskar menntastofnanir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Lýsa vantrausti á ríkisstjórnina, krefjast þingrofs og nýrra kosninga

Lýsa vantrausti á ríkisstjórnina, krefjast þingrofs og nýrra kosninga
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Mannréttindadómstóll Evrópu slær á puttana á íslenska ríkinu – Brutu gegn rétti til frjálsra kosninga

Mannréttindadómstóll Evrópu slær á puttana á íslenska ríkinu – Brutu gegn rétti til frjálsra kosninga
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: ESB er miklu meira en sameiginlegur markaður og evran

Ole Anton Bieltvedt skrifar: ESB er miklu meira en sameiginlegur markaður og evran
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sögusagnir sem borgin vísaði á bug eiga sér meiri stoð í raunveruleikanum en af er látið

Sögusagnir sem borgin vísaði á bug eiga sér meiri stoð í raunveruleikanum en af er látið
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Fylgið minnkað um helming – 40 þúsund vantreysta Bjarna sem sætir afarkostum VG

Orðið á götunni: Fylgið minnkað um helming – 40 þúsund vantreysta Bjarna sem sætir afarkostum VG