fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Eyjan

Styrmir: Dagur verður að tala skýrar, vilji hann láta taka mark á sér

Trausti Salvar Kristjánsson
Föstudaginn 9. febrúar 2018 10:26

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eyþór og Dagur berjast um borgina Samsett mynd/DV

Styrmir Gunnarsson, fyrrum ritstjóri Morgunblaðsins, er ekki sáttur við svör Dags. B. Eggertssonar borgarstjóra í Kastljósinu í gær, hvar hann ræddi borgarmálin við Eyþór Arnalds, borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins.

Styrmir segir svör Dags hafa verið óskýr þegar stjórnandi Kastljóssins, Einar Þorsteinsson, spurði hvort staðið hefði verið við loforð í húsnæðismálum:

„Borgarstjóri gaf upp tölu um íbúðir í hönnun. Það var auðvitað rétt hjá Eyþóri Arnalds að fólk býr ekki í íbúðum, sem eru í hönnun. Þetta var einföld spurning og embættismannakerfi borgarinnar hlýtur að hafa burði til að upplýsa borgarstjóra um raunverulegar tölur.“

Dagur sagði í viðtalinu að Sjálfstæðismenn hefðu viljað hætta að hugsa um þá sem minna hefðu milli handanna þegar félög á borð við Gamma og aðrir einkaaðilar hófu innreið sína á leigumarkaðinn. Eyþór svaraði því til, að það væri „hreinlega dónalegt“  að segja að Sjálfstæðisflokkurinn vildi ekki hjálpa þeim sem minna mættu sín.

Dagur nefndi þá að Samfylkingin hefði lofað að byggðar yrðu 2500 til 3000 íbúðir á þremur til fimm árum og nú þegar væru 2500 íbúðir í hönnun eða byggingu og útlit væri fyrir að að loforðið yrði efnt ári á undan áætlun.

Þá benti Eyþór á að fólk byggi ekki í íbúðum sem verið væri að hanna og að fáar íbúðir hefðu risið í stjórnartíð Dags.

 

Í lokin nefnir Styrmir vandann sem felst í því að oddviti flokksins í Reykjavík, Eyþór Arnalds, skuli setja sig á móti borgarlínunni, sem Sjálfstæðismenn í öðrum nágrannasveitafélögum aftur á móti styðja. Segir hann þetta veikleika og spyr hvernig flokkurinn ætli að takast á við þann veikleika.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Jóhann Páll skrifar: Höggvum á skriffinnsku í heilbrigðiskerfinu

Jóhann Páll skrifar: Höggvum á skriffinnsku í heilbrigðiskerfinu
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Jón Gnarr um framboð Katrínar – „Þetta stríðir gegn einhverju sem mér finnst eðlilegt og rétt“

Jón Gnarr um framboð Katrínar – „Þetta stríðir gegn einhverju sem mér finnst eðlilegt og rétt“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þykir miður að kaupin á TM hafi orðið umdeild

Þykir miður að kaupin á TM hafi orðið umdeild
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Fyrrverandi forstjóri Reita: Hús eru byggð of þétt og of mikill hraði í byggingarframkvæmdum

Fyrrverandi forstjóri Reita: Hús eru byggð of þétt og of mikill hraði í byggingarframkvæmdum
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Katrín og kosningastjórinn afsala sér biðlaunum

Katrín og kosningastjórinn afsala sér biðlaunum
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sagan muni dæma þau og tíminn leiða í ljós hvað það muni kosta Reykvíkinga – „Þetta eru daprir tímar“

Sagan muni dæma þau og tíminn leiða í ljós hvað það muni kosta Reykvíkinga – „Þetta eru daprir tímar“