fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Fjögur nýsköpunarfyrirtæki hljóta viðurkenningar fyrir samstarf

Trausti Salvar Kristjánsson
Miðvikudaginn 17. janúar 2018 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í dag afhenti Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra viðurkenningar til fjögurra fyrirtækja innan Íslenska sjávarklasans sem skarað hafa framúr við að efla samstarf við önnur fyrirtæki.

Fyrirtækin sem hlutu viðurkenningu eru Navis, Evris, Iceland Sustainable Fisheries og Knarr Maritime. Navis hlýtur viðurkenningu fyrir að efla samstarf tæknifyrirtækja um hönnun á umhverfisvænum skipum. Evris hlýtur viðurkenningu fyrir að efla samstarf við ýmis fyrirtæki innan klasans um þátttöku í alþjóðlegum rannsóknarverkefnum.  Iceland Sustainable Fisheries hlýtur viðurkenningu fyrir að hafa komið á víðtæku samstarfi útgerða um vottun á sjávarafurðum. Þá hlýtur Knarr Maritime viðurkenningu fyrir að efla samstarf tæknifyrirtækja um heildstæðar skipalausnir fyrir alþjóðarmarkað.

Þetta er fjórða árið sem Íslenski sjávarklasinn veitir þessar viðurkenningar. Tilgangurinn með viðurkenningunum er að hvetja fyrirtæki til að efla samstarf sín í milli og styrkja þannig enn frekar Ísland sem forystuland í sjávarútvegi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn