fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Viðar ver föður sinn: „Flottur leiðtogi og að mínu mati hæfasti frambjóðandinn“

Trausti Salvar Kristjánsson
Föstudaginn 12. janúar 2018 09:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Viðar Guðjohnsen eldri

Viðar Guðjohnsen eldri, sem býður sig fram í leiðtogakjör Sjálfstæðisflokksins, hefur vakið mikla athygli frá því að hann bauð sig fram á miðvikudaginn. Þykir hann hafa stolið hinni margfrægu senu.

Sonur Viðars og alnafni, fjallar um föður sinn á Facebook síðu sinni í gær kvöldi. Þar kemur hann föður sínum til varnar, en Viðar eldri þykir hafa ansi hægrisinnaðar skoðanir, sem fara jafnvel langt fram úr því sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur staðið fyrir, en sjálfur kallar hann sig harðlínu hægrimann og hefur farið mikinn á Útvarpi Sögu.

 

En sonurinn segist ekki ætla að líða illt umtal um föður sinn:

„Áhugaverður dagur. Ég held að pabba hafi tekist það að segja allt sem bannað er að segja á mettíma í viðtalinu í morgun. Hvað sem mönnum kann að finnast um hans skoðanir, hann er pabbi minn og ég styð hann alla leið. Þeir sem tala illa um hann geta ekki átt von á því að ég gleymi því í bráð. Sennilega er það eitt af því fáa sem ég á erfitt með að fyrirgefa.“

Þá telur Viðar upp kosti föður síns, sem hann segir hæfasta frambjóðandann:

„Hann er flottur leiðtogi og að mínu mati hæfasti frambjóðandinn. Ástæða númer eitt, tvö og þrjú, hann kann að byggja og hann veit hvað hann þarf að gera til þess að menn fari að byggja íbúðarhúsnæði aftur. Þetta er eitthvað sem hann hefur gert alla sína tíð og er mikilvægasta mál Reykjavíkur um þessar mundir.“

Þá víkur Viðar að ummælum föður síns um heilbrigðiskerfið og feitt fólk:

„Þá er það líka hárrétt hjá honum að það er auðveldara og hagkvæmara að breyta um lífsstíl heldur en að meðhöndla slæman og óhollan lífsstíl. Þetta er staðreynd. Ásamt þeirri staðreynd að lífstílssjúkdómar eru farnir að valda mikilli og óþarfa útgjaldaaukningu í heilbrigðiskerfinu.“

Að lokum segir Viðar eina sögu af föður sínum, sem sýni hvaða mann hann hafi að geyma, hann sé ekki vondur maður :

„Hvort hann pabbi sé vondur maður skal ég segja ykkur eina sögu. Fyrir um ári síðan kom hann til mín og spurði hvort ung pólsk kona með nýfætt barn gæti fengið að gista hjá okkur Verenu. Konan hafði í engin hús að venda. Hjá honum var allt fullt og hann gat ekki vísað henni á dyr. Án þess að fá nokkuð fyrir lagði hann á sig mikla vinnu til þess að hjálpa þessari ungu konu. Þetta er ekki einsdæmi, það vita allir sem þekkja pabba og ég skal líka segja ykkur það að þegar hrunið dundi á okkur öllum og leiga og húsnæði hækkaði upp úr öllu valdi hélt hann að sér höndum og reyndi hvað hann gat að hækka ekki leiguna nema í algjörri nauðsyn. Þetta er nú þessi ,,vondi maður“. Hann gerir þó stóran greinamun á því þegar hann hjálpar fólki með sína eigin peninga en þegar menn gera sig stóra og hjálpa fólki á kostnað skattgreiðenda. Það er nefnilega nokkuð auðvelt að vera góður með annarra manna fé.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Hartman í Val
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Lýsa vantrausti á ríkisstjórnina, krefjast þingrofs og nýrra kosninga

Lýsa vantrausti á ríkisstjórnina, krefjast þingrofs og nýrra kosninga
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Mannréttindadómstóll Evrópu slær á puttana á íslenska ríkinu – Brutu gegn rétti til frjálsra kosninga

Mannréttindadómstóll Evrópu slær á puttana á íslenska ríkinu – Brutu gegn rétti til frjálsra kosninga
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: ESB er miklu meira en sameiginlegur markaður og evran

Ole Anton Bieltvedt skrifar: ESB er miklu meira en sameiginlegur markaður og evran
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sögusagnir sem borgin vísaði á bug eiga sér meiri stoð í raunveruleikanum en af er látið

Sögusagnir sem borgin vísaði á bug eiga sér meiri stoð í raunveruleikanum en af er látið
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Fylgið minnkað um helming – 40 þúsund vantreysta Bjarna sem sætir afarkostum VG

Orðið á götunni: Fylgið minnkað um helming – 40 þúsund vantreysta Bjarna sem sætir afarkostum VG