fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Eyjan

Vantraust á Umhverfisstofnun og Skipulagsstofnun

Trausti Salvar Kristjánsson
Þriðjudaginn 5. desember 2017 12:53

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þórólfur Júlían Dagsson skrifar:

Nú á dögunum birtist frétt af því að verksmiðja United Silicon væri í raun og veru ekki tilbúin til reksturs. Arionbanki lét gera úttekt á verksmiðjunni og í ljós kom að ekki er um rekstrarhæfa verksmiðju að ræða. Lífeyrissjóðirnir íhuga að fara í mál út af því þeim finnst þeir hafa verið blekktir, en hver ber ábyrgð á þessu öllu saman?

Umhverfisstofnun og Skipulagsstofnun. Sumir taka andköf, aðrir kinka líklegast kolli. Já, Umhverfisstofnun og Skipulagsstofnun bera að mínu mati ábyrgð á því hvernig farið er fyrir þessu verkefni. Þessar stofnanir virðast vera vanhæfar til þess að meta hvort kísilverksmiðjur séu tilbúnar eður ei. Því spyr ég: Hvernig stendur á því að við erum að reisa hér á Íslandi kísilver ef Umhverfisstofnun og Skipulagsstofnun geta ekki einu sinni sagt hvort verksmiðja sé tilbúin til reksturs eða ekki? Það gæti vissulega verið rangt og stofnanirnar hafi vitað allan tímann að ekki væri um fullbúna verksmiðju að ræða – en þá af hverju að leifa henni að fara í rekstur?

Skortur á tæknikunnáttu

Grundvöllur þess að svona verkmiðja fái að starfa er að hún ráði yfir besta fáanlega búnaði (BAT, Best Available Technology). Svo virðist sem Umhverfisstofnun hafi ekki tæknikunnáttuna til þess að meta hvort búnaðurinn sé full kláraður eða hvort hann sé í raun besti fáanlegi búnaður. Hvaða viðmið eru þeir að nota?

Óásættanlegur frágangur

Frágangur í Helguvík er með öllu óásættanlegur. Ég hef lengi velt því fyrir mér hvernig leyfi fékkst fyrir því að reisa segldúksskemmur á opnu svæði þar sem vindar geta hæglega blásið þær niður. Þá er viðarkurl geymt í opnum haugum og hefur nú dreift sér yfir stórt svæði. Þetta er ekki í lagi.

Heilsa fólks á að njóta vafans

Úrbóta er þörf. Breyta þarf lögum um megunarvarnir þannig að varúðarreglan, ein af meginreglum alþjóðlegs umhverfisréttar, en kjarni hennar er sá að ekki skuli láta óvissu um afleiðingar til tekinna athafna eða athafnaleysis koma í veg fyrir að gripið sé til fyrirbyggjandi aðgerða. Í þessari reglu felst einnig sú hugsun að stjórnvöld geti ekki skýlt sér bak við vísindalega óvissu til að forðast varúðarráðstafanir. Fólk og heilsa þess eiga að njóta vafans umfram hagsmuni fjárfesta og pólitíska hagsmuni. Í því skyni væri lag að efla samstarf Embættis Landlæknis og Umhverfisstofnunar til að koma í veg fyrir mengun. Eínnig mætti gera auknar kröfur um menntun starfsfólks Umhverfisstofnunar sem veitir starfsleyfi og fylgi þeim eftir með eftirlisferðum, frekar en að treysta á álit iðnfyrirtækisins og ráðgjafa þess.

Umhverfisstofnun og Skipulagsstofnun þurfa að axla ábyrgð. Ef starfsemi United Silicon er prófsteinn á það hversu vel undirbúin stofnunin er til þess að sinna eftirliti og leyfisveitingu fyrir þennan iðnaði þá er morgunljóst að þessar stofnanir báðar fá falleinkunn.

Þórólfur Júlían Dagsson
Stjórnarmaður Andstæðinga Stóriðju í Helguvík og Pírati

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus