„Þegar staðreyndir hitta menn illa fyrir er hollast að líta í eigin barm. Það á jafnt við um dómara og okkur hin. Formaður Dómarafélags Íslands eykur ekki veg dómarastéttarinnar með málflutningi af þessu tagi,“ segir Kristín Þorsteinsdóttir, aðalritstjóri fréttastofu 365, í leiðara í helgarblaði Fréttablaðsins.
Kristín segir að það hafi verið „kostulegt“ að fylgjast með aðalfundi Dómarafélags Íslands í liðinni viku. „Aðalumræðuefni fráfarandi formanns var „mjög svo neikvæð umræða um dómara”. Hann vísaði í setningarræðu í umfjöllun Fréttablaðsins um laun og eigin viðskipti dómara 2015 og 2016. Formaðurinn fullyrti að fréttir blaðsins um launahækkanir hefðu verið rangar.“
Kristín vitnar í Skúla Magnússon, formann Dómarafélags Íslands, sem heldur því fram að Fréttablaðið hafi ekki fjallað rétt um launahækkanir dómara. Skúli segir að raunveruleg hækkun á launum dómara hafi verið um sex til sjö prósent en Fréttablaðið hafi flutt fréttir af margra tuga prósenta launahækkunum dómara.
„Það var ekki fyrr en skrif blaðsins voru kærð til Siðanefndar Blaðamannafélags Íslands sem þessu linnti en þá var nýr þráður fundinn hjá Fréttablaðinu til að rægja dómara,“ segir Skúli.
Kristín bendir á að Fjölmiðlanefnd og Siðanefnd blaðamanna komust báðar að þeirri niðurstöðu að ekkert athugavert væri við fréttaflutningi Fréttablaðsins, og úrskurðuðu Fréttablaðinu í vil.
„Næst vék formaðurinn máli sínu að umfjöllun Fréttablaðsins um hlutafé dómara frá því í desember í fyrra. Hann talaði um þaulskipulagða aðgerð til að koma höggi á dómstóla […} Engu er líkara en formaðurinn halli réttu máli vísvitandi – eða mann hann ekki betur? Málflutningur af þessu tagi er dómurum ekki sæmandi, svo ekki sé nú talað um formann Dómarafélagsins,“ segir Kristín.
„Fréttirnar byggðust á traustum gögnum. Þær voru fluttar í að minnsta kosti þremur miðlum, samt taldi formaðurinn nægja að nefna „þátt Fréttablaðsins.“ Efnislegar athugasemdir voru engar. Ekki þarf dómara til að dæma svona málflutning – hann dæmir sig sjálfur. Fjölmiðlarnir studdust við staðreyndir málsins, ekkert annað.“