fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Eyjan

Þorgerður Katrín orðin formaður Viðreisnar

Ari Brynjólfsson
Miðvikudaginn 11. október 2017 18:16

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar. Mynd: DV/Sigtryggur Ari

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er orðin formaður Viðreisnar. Þingflokkur Viðreisnar fundaði á skrifstofu flokksins í dag þar sem staða Benedikts Jóhannessonar var rædd. Var það niðurstaða fundarins að Benedikt myndi víkja fyrir Þorgerði Katrínu. Óánægja hefur verið með framgöngu Benedikts að undanförnu og skoðanakannanir benda til að flokkurinn muni bíða afhroð í komandi kosningum. Voru klaufaleg ummæli Benedikts á RÚV í byrjun vikunnar ekki til að auka ánægju þingflokksins. Heimildir Eyjunnar herma að Þorgerður Katrín hafi sóst eftir formannsstöðunni frá því að boðað var til kosninga í lok september. Heimildir Vísis benda til að Jóna Sólveig Elínardóttir verði áfram varaformaður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega