Ragnar Rögnvaldsson formaður Sigrúnar, félags ungra Framsóknarmanna í Reykjavík, segir Sveinbjörgu Birnu Sveinbjörnsdóttur oddvita Framsóknar og Flugvallarvina ekki vera í takti við samstarfsfólk sitt og „vera vitlausa“. Líkt og Eyjan greindi frá í morgun sendi stjórn Sigrúnar frá sér yfirlýsingu þar sem lýst var yfir vantrausti á Sveinbjörgu Birnu vegna ummæla hennar í viðtali á Útvarpi Sögu í síðustu viku þar sem hún talaði um skólagöngu þeirra sem „sokkinn kostnað“ fyrir Reykjavíkurborg.
Ragnar sagði í þættinum Harmageddon á X-inu í morgun að það hafi ítrekað verið rætt við Sveinbjörgu og hún beðin um að tjá sig ekki á niðrandi hátt um þjóðfélagshópa, þar sem hún taki ekki neinum rökum verði þrýst á að hún verði ekki í forystusæti í Reykjavík í kosningunum á næsta ári. Aðspurður um hvort hún væri stjórnlaus sagði Ragnar:
Kannski ekki alveg stjórnlaus, en svo ég noti bara hreina íslensku, hún virðist bara vera vitlaus.
Margir samflokksmenn Sveinbjargar Birnu hafa gagnrýnt ummælin, þar á meðal Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir borgarfulltrúi Framsóknar og Flugvallarvina og Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins. Sagði hann í viðtali við RÚV að ummæli hennar væru óheppileg og endurspegluðu ekki stefnu flokksins. Guðfinna Jóhanna sagði svo í samtali við MBL í dag að hún ætli að sækjast eftir oddvitasæti flokksins fyrir kosningarnar á næsta ári, vildi hún ekki ræða um samband sitt við Sveinbjörgu Birnu.