Eftirspurn eftir hótelherbergjum og ferðamenn eru farnir að vera viðkvæmari fyrir verðinu, þetta segir Eva Silvernail, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs hótelkeðjunnar Center Hotels í samtali við Morgunblaðið í dag. Segir hún að sumrin séu alltaf góður tími í ferðaþjónustu en styrking krónunnar hafi áhrif og nú séu ferðamenn farnir að verða viðkvæmari fyrir verðinu en áður. Segir Eva að hluti gæti skýrst af meiri framboði á hótelherbergjum sem og Airbnb gistingu:
Hluti af minni eftirspurn skrifast líka á að framboð á bæði hótelherbergjum og leyfislausri Airbnb-gistingu hefur aukist,
segir Eva. Auður Anna Ingólfsdóttir hótelstjóri Icelandair Hótel Hérað á Egilsstöðum segir að síðasti vetur hafi verið með rólegasta móti, Auður Anna hefur starfað þar í tvo áratugi og segir hún að það sé vöntun á Íslendingum:
Það er mjög dýrt að fljúga hingað, en dýrasta flugfarið kostar um 50 þúsund krónur fram og til baka. Fyrirtæki virðast til dæmis frekar fara til útlanda með árshátíðir og fundi.