Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar:
Borgarstjórnarmeirihlutinn hefur með allnokkrum rétti verið sakaður um að vera í herferð gegn einkabílnum. Ríkur vilji virðist vera hjá borgarfulltrúum meirihlutans til að hafa vit fyrir fólki þegar kemur að ferðamáta. Þannig er talið mun æskilegra að fólk fari í strætó eða vippi sér á reiðhjól þurfi það að fara ferða sinna en að það setjist upp í sinn eigin bíl. Þessi áhersla borgarmeirihlutans mætir ekki sérstökum skilningi borgarbúa sem harðneita að láta sér segjast. Þeim til afsökunar má segja að vindasamt og erfitt sé að hjóla í íslensku borgarumhverfi og strætó er ekki valkostur í huga margra einfaldlega vegna þess að of langur tími líður á milli ferða. Það er þægilegur kostur að velja einkabílinn, sem er fyrsta val flestra. Það virðist ekki ætla að breytast hvort sem meirihluta borgarstjórnar líkar betur eða verr.
Meðan bíleigendur eiga í hinu mesta basli við að finna hentug bílastæði í borginni hafa rútur fullar af ferðamönnum ekið um þröngar götur miðbæjarins svo að segja á hvaða tíma sólarhrings sem er og lagt þar sem bílar hins almenna borgara fá aldrei að leggja. Vegfarendur eiga iðulega fótum sínum fjör að launa þegar þessi fyrirferðarmiklu farartæki koma æðandi í öllu sínu veldi. Það er greinilegt hver krefst þess að eiga forgang.
Íslendingar vilja telja sig gestrisna þjóð þótt hin mikla fjölgun ferðamanna hafi orðið til þess að græðgishugsun hafi eflst og dafnað hjá of mörgum sem starfa í ferðamannaiðnaðinum. Erlendur ferðamaður virðist í hugum ýmissa þjónustuaðila fyrst og fremst vera einstaklingur sem hægt er að græða á. Það þýðir samt ekki að ómögulegt sé að gera vel við hann. Til dæmis varð til sá undarlegi siður að keyra erlenda ferðamenn upp að dyrum þeirra gistastaða sem þeir hafa valið sér. Íslendingar vildu örugglega sjálfir búa við slíkan lúxus þegar þeir ferðast erlendis, en upp á það er sjaldan eða aldrei boðið. Menn skulu bara gjöra svo vel og bjarga sér – og gera það yfirleitt möglunarlaust.
Borgarstjórn hefur að ákveðnu marki brugðist við þessum vanda og setti á sínum tíma reglur sem heftu umferð risastórra hópbifreiða um miðbæinn, en það leysti ekki nema hluta vandans. Nú munu ganga í gildi nýjar reglur til að draga úr umferð hópbifreiða, óháð stærð þeirra. Bannsvæði er stækkað en safnstæðum fyrir hópbifreiðar verður fjölgað. Þessar reglur munu gilda í sumar og verða síðan endurskoðaðar í ljósi reynslunnar. Þetta er viturleg ráðstöfun og löngu tímabær. Það er mun gáfulegra að setja takmörk á þennan fyrirferðarmikla og ónauðsynlega akstur, sem mengar og skapar hættu, fremur en að líta það hornauga að fjölskyldur noti einkabíl sinn.