Reykjavíkurborg, borgarbúar, fyrirtæki, stofnanir og skólar taka þátt í Evrópskri hreinsunarviku þessa dagana, segir í fréttatilkyningu frá Reykjavíkurborg að þann dag sé gert ráð fyrir að íbúar tíni saman rusl á götum og í hverfum borgarinnar, og getur hver og einn getur valið sér svæði til að hreinsa rusl.
Eru borgarbúar eru hvattir til að taka þátt í átakinu í vikunni, en það nær hámarki í viðamiklum hreinsunardegi laugardaginn 6. maí. Í gengum sérstaka skráningarsíðu er hægt er að velja opið leiksvæði og nágrenni.
Öll opin leiksvæði verða skráð inn á skráningarsíðuna og auðvelt að velja sér stað á korti. Þeir sem vilja geta fengið ruslapoka á hverfastöðvum Reykjavíkurborgar á Njarðargötu, við Jafnasel og Stórhöfða á laugardeginum 6. maí eða dagana á undan. Húsfélög eru hvött til að taka saman höndum og hvetja íbúa til að taka þátt.
Starfsfólk Reykjavíkurborgar verður til staðar laugardaginn 6. maí og mun svo sækja ruslapokana á valda staði sem merktir verða á kortum eða tilkynntir til borgarinnar á netfangið upplysingar@reykjavik.is eða í síma 411 1111.
Grunnskólar í Reykjavík eru einnig hvattir til að taka til í nærumhverfi sínu og geta skráð sig á sérstakri skráningarsíðu fyrir skóla. Fyrirtæki eru hvött til að taka þátt í hreinsunarvikunni og geta þau skipulagt hreinsun í nærumhverfi sínu þegar þeim hentar og skráð sig á svæðið.
Allir sem taka þátt í hreinsunarátakinu geta síðan sent myndir á Fésbókarsíðuna Hreinsum saman!