fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Eyjan

Lögreglumaður skotinn til bana í París í gærkvöldi og tveir særðir: Gæti haft áhrif á forsetakosningarnar á sunnudaginn

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 21. apríl 2017 04:39

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frá vettvangi í gærkvöldi. Mynd/Getty

Lögreglumaður var skotinn til bana í París í gærkvöldi og tveir til viðbótar særðir eftir að karlmaður skaut á þá. Lögreglumenn skutu árásarmanninn til bana. Þetta átti sér stað á Champs-Elysees sem er eitt af vinsælustu svæðunum í París. Frönsk yfirvöld segja að um hryðjuverk hafi verið að ræða. Árásin gæti haft áhrif á val margra kjósenda á sunnudaginn en þá ganga Frakkar að kjörborðinu og kjósa nýjan forseta.

Sky-fréttastofan segir að árásarmaðurinn hafi stigið út úr bíl, sem var ekið upp að kyrrstæðum lögreglubíl, og strax skotið á lögreglumennina. Hann er síðan sagður hafa hlaupið eftir gangstéttinni og hafi miðað byssu sinni að öðrum lögreglumönnum. Lögreglumenn svöruðu skothríð hans og urðu honum að bana.

Lögreglan hóf strax rannsókn á málinu og húsrannsóknir voru framkvæmdar á nokkrum stöðum. Hryðjuverkasamtökin sem kenna sig við Íslamska ríkið segjast hafa staðið fyrir árásinni og segja að árásarmaðurinn hafi heitið Abu Yusuf al Beljiki en talið er að hann hafi verið frá Belgíu. Frönsk yfirvöld telja hins vegar að árásarmaðurinn hafi verið 39 ára maður sem bjó í úthverfi Parísar. Húsleit var gerð á heimili hans en hann var undir eftirliti lögreglunnar og hafði áður hlotið dóm fyrir að ráðast á lögreglumenn.

Lögreglan hefur gefið út handtökuskipun á annan mann sem kom með lest til Frakklands frá Belgíu, talið er að hann geti tengst árásinni.

Mikil öryggisgæsla er í Frakkland vegna forsetakosninganna sem fara fram á sunnudaginn.

Árásin gæti orðið til þess að kjósendur halli sér að þeim frambjóðendum sem þeim þykja líklegastir til að geta veitt þeim góða vernd en ógnin sem stafar af öfgasinnuðum íslamistum hefur verið mikið rædd í kosningabaráttunni.

Forsetaframbjóðendurnir verða nú að stíga varlega til jarðar vegna málsins og forðast að láta líta út fyrir að þeir séu að reyna að notfæra sér það sér sjálfum til framdráttar. Francois Fillon, frambjóðandi miðjuhægriflokka, tilkynnti í gærkvöldi að hann væri hættur kosningabaráttu sinni í virðingarskyni við lögreglumennina og hvatti aðra frambjóðendur til að gera það sama. Fillon, sem hefur lýst eindregnum skoðunum sínum varðandi öryggismál í Frakklandi, er þó væntanlega meðvitaður um að atburðir gærkvöldsins geta unnið með honum í kosningunum.

Árásin gæti einnig ýtt kjósendum til Marine Le Pen sem hefur heitið því að efla gæsluna á landamærum Frakklands og taka á ólöglegum innflytjendum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus