fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Nýir hluthafar koma að Pressunni – Dreift eignarhald að baki tæplega þrjátíu fjölmiðlum

Ari Brynjólfsson
Þriðjudaginn 18. apríl 2017 15:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Útgáfufélagið Pressan er að ljúka hlutafjáraukningu fyrirtækisins þar sem breiður hópur fjárfesta kemur að rekstri samstæðunnar. Hlutafé í Pressunni, móðurfélagi Vefpressunnar, DV og Birtíngs, verður aukið um 300 milljónir króna og formlega verður gengið frá skráningu hlutafjár á næstu dögum.

Innan samstæðunnar eru margir af þekktustu fjölmiðlum landsins og nýverið samþykkti Samkeppniseftirlitið yfirtöku á tímaritaútgáfunni Birtíngi. Meðal miðla samstæðunnar eru: Dagblaðið Vísir (DV), margir af vinsælustu og mest lesnu vefmiðlum landsins – þar á meðal Pressan.is, Eyjan.is, bleikt.is, 433.is, doktor.is og DV.is, auk sjónvarpsstöðvarinnar ÍNN. Þá eru fjölmörg landsmálablöð gefin út af útgáfunni, t.d. Akureyri vikublað, Vesturland, Austurland, Suðri, Vestfirðir og Reykjanes. Undir hatti Birtíngs eru t.d. gefin út tímaritin Vikan, Gestgjafinn, og Hús og híbýli.

Gert er ráð fyrir því að sameiginleg velta Pressunnar og tengdra félaga árið 2017 verði um 1,3 milljarðar króna.

Ný stjórn félagsins var kosin á hluthafafundi í dag og munu eftirfarandi aðilar setjast í stjórnina:

• Gunnlaugur Árnason verður stjórnarformaður og mun leiða stefnumótun samstæðunnar fyrir hönd hluthafa. Hann hefur víðtæka reynslu af fjölmiðlun, bæði hér á landi og erlendis. Gunnlaugur er eigandi bresku fjölmiðlafyrirtækjanna M2 Communications og M2 Bespoke, hann vann um fimm ára skeið sem blaðamaður hjá Reuters-fréttastofunni í Lundúnum og var ritstjóri Viðskiptablaðsins á árunum 2005-2007.
• Meðstjórnendur eru þau Þorvarður Gunnarsson, fyrrum forstjóri Deloitte á Íslandi, Sesselja Vilhjálmsdóttir framkvæmdastjóri hugbúnaðarfyrirtækisins TagPlay og Halldór Kristmannsson yfirmaður Samskipta- og markaðssviðs lyfjafyrirtækisins Alvogen.

Björn Ingi Hrafnsson, sem verið hefur stjórnarformaður og útgefandi Pressunnar frá stofnun fyrirtækisins, hverfur nú að eigin ósk til annarra verkefna innan samstæðunnar. Hann mun m.a. hafa umsjón með sjónvarpsþættinum Eyjunni á ÍNN. Björn Ingi tekur þátt í hlutafjáraukningunni ásamt viðskiptafélaga sínum og meðstofnanda Pressunnar, Arnari Ægissyni. Þá eiga þeir jafnframt kauprétt í félaginu.

Þetta eru mikil tímamót og ég fagna þessum tíðindum mjög, enda höfum við unnið að þessu um margra mánaða skeið,

segir Björn Ingi.

Það er mikil viðurkenning fyrir þetta fyrirtæki að ljúka svo umfangsmikilli hlutafjárhækkun og um leið mikilvægt að breiður hluthafahópur komi að rekstri tæplega þrjátíu ólíkra fjölmiðla. Það hefur verið algjörlega mögnuð lífsreynsla að byggja þetta fyrirtæki upp á undanförnum árum með okkar góða samstarfsfólki og mikilvægt að tryggja fjárhagslegan grundvöll þess til lengri framtíðar. Allir vita hversu mikilvæg starfsemi fjölmiðla er í okkar samfélagi, en jafnframt að rekstrarumhverfi þeirra hefur verið krefjandi. Nú er ég spenntur að taka þátt í frekari uppbyggingu sem stór hluthafi og sinna jafnframt öðrum verkefnum.

Gunnlaugur Árnason segir það krefjandi verkefni að koma að rekstri Pressunnar.

Félagið hefur vaxið hratt á síðustu árum og nú er kominn tími til þess að staldra við og leitast við að nýta tækifæri sem felast innan samstæðunnar. Félagið er vel í stakk búið til þess að bjóða auglýsendum upp á fjölbreyttan lesendahóp á vefnum, á pappír og í sjónvarpi – dreifingarleiðir sem gera samstæðunni kleift að nýta sér nýja tekjustrauma sem hafa verið að þróast á síðustu árum. Aðkoma nýrra hluthafa hefur þau áhrif að hægt verður að bæta enn frekar þjónustu við notendur miðla samstæðunnar.

Núverandi framkvæmdastjóri Birtíngs, Karl Steinar Óskarsson, mun sinna því hlutverki á samstæðugrundvelli. Þá mun Matthías Björnsson, sem verið hefur fjármálastjóri Birtíngs, verða fjármálastjóri samstæðunnar. Sigurvin Ólafsson verður áfram framkvæmdastjóri DV.

Eftirfarandi hluthafar hafa staðfest þátttöku sína í hlutafjáraukningu í Pressunni ehf. (móðurfélagi Vefpressunnar, DV, ÍNN og Birtíngs).

Kringluturninn ehf. 50.000.000 Félag í eigu Björns Inga og Arnars
OP ehf. (Birtingur) 47.000.000 Félag í eigu Hreins Loftssonar, Karls Steins Óskarssonar og Matthíasar Björnssonar
Óstofnað félag  20.000.000 Félag í eigu Andra Gunnarssonar, Fannars Ólafssonar og Gests Breiðfjörð Gestssonar
Eykt ehf. 15.000.000 Félag í eigu Péturs Guðmundssonar
Gufupressan ehf. 10.000.000 Félag í eigu Skúla Gunnars Sigfússonar
Venediktsson samsteypan 2.000.000 Sigurvin Ólafsson
Viel ehf. 1.000.000 Félag í eigu Viggós Einars Hilmarssonar
Fjárfestingafélagið Dalurinn ehf. 155.000.000 Félag í eigu Róberts Wessman, Árna Harðarsonar, Hilmars Þórs Kristinssonar, Halldórs Kristmannssonar og Jóhanns G. Jóhannssonar
Samtals: 300.000.000

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki