Ragnar Þór Ingólfsson hefur verið kjörinn nýr formaður VR. Hlaut Ragnar Þór 62,98% atkvæða, eða 3.480 atkvæði alls. Ólafía B. Rafnsdóttir sitjandi formaður VR hlaut 37% atkvæði, eða 2.046 atkvæði. Kosningin stóð yfir í viku og lauk nú á hádegi, þátttaka var 17,09%, en rúmlega 34 þúsund manns voru með kosningarétt. Þetta kemur fram á vef VR.
Ólafur Reimar Gunnarsson, Harpa Sævarsdóttir, Birgir Már Guðmundsson, Guðrún Björg Gunnarsdóttir, Unnur María Pálmadóttir, Helga Ingólfsdóttir og Elisabeth Courtney voru kjörin í stjórn VR.
Ólafía Rafnsdóttir hefur verið formaður VR í fjögur ár, en hún sigraði Stefán Einar Stefánsson í kosningum árið 2013, hún var síðan endurkjörin árið 2015.