Hér má sjá gríðarlegar hugmyndir, í anda grænna og vistvænna, sjónarmiða, um að reisa hér svonefnda Edengarða Íslands.
Þetta eru gróðurhús sem eiga að vera sjálfbær og yrðu rekin sem sjálfseignastofnun. Hugmyndirnar eru setttar fram af Pálma Einarssyni en hann er iðnhönnuður sem hefur meðal annars starfað hjá Össuri.
Hugmyndin er að rækta lífrænt grænmeti og ávexti, en að auki er þarna talað um iðnaðarhamp – og lyfjahamp (gæti verið umdeilt).
Þarna eru nefndar nokkrar leiðir til að fjármagna verkefnið, einkafjárfesting, að margir einstaklingar leggi fram litlar fjárhæðir (crowdfunding), að sveitarfélög komi að þessu.
Einnig má lesa skýringar á því hvernig við erum vön að gera hlutina, með stóriðju sem er nánast niðurgreidd og banka sem framleiða lítið annað en pappír.
Við þann samanburð líta hugmyndir um Edengarð betur út, en einnig er þarna orðaður möguleiki á grænu framboði til sveitarstjórnakosninga í vor.
Hugmyndirnar má skoða nánar hér.